
Þjónusta
Vökvaslöngusmíði
Allt frá stofnun Barka hefur slöngusmíði verið sérgrein okkar og er enn þrátt fyrir að vöruúrvalið hafi aukist með árunum. Við leggjum áherslu á snögga og góða þjónustu með gæði og fagmennsku í fyrirrúmi. Við bjóðum upp á vandaðar Ítalskar slöngur frá DIESSE sem hafa verið samstarfsaðili okkar í yfir tvo áratugi.

Bremsuslöngusmíði
Við smíðum viðurkenndar bremsuslöngur í flestar gerðir ökutækja. Um er að velja mikið úrval af tengjum og slöngum frá Bandaríska framleiðandanum BRAKEQUIP. Allar slöngur eru þrýstiprófaðar að lokinni smíði. Þessi kostur hentar vel fyrir þá sem vilja fá bremsuslöngu á mjög stuttum tíma.

Bremsurörasmíði
Við smíðum viðurkennd bremsurör í allar gerðir ökutækja. Bremsurörin koma frá Bandaríska framleiðandanum BRAKEQUIP. Rörin eru mjúk og er mjög auðvelt að beygja í höndum.
